Símareglur HLÍÐARSKÓLA
Skólaárið 2023-2024
- Það má koma með farsíma og snjalltæki í skólann en á skólatíma eiga þau að vera í skólatösku eða vasa og skal vera slökkt (öll hljóð og titringur) á þeim nema kennari leyfi annað.
- Nemendur bera sjálfir ábyrgð á tækjum í persónulegri eigu sem þeir koma með í skólann.
- Við notum matmálstíma og frímínútur til samtala, samveru og leikja.
- Síma og snjalltæki er hægt að nota til afþreyingar í skólabílnum til og frá heimili.
- Það er með öllu óheimilt að taka upp hljóð, myndir eða myndbönd á hvers konar rafeindatæki án leyfis starfsfólks og viðkomandi.
- Þegar ekki er farið eftir þessum reglum þá er atvikið tilkynnt foreldrum og skráð. Afleiðingar eru síðan ákveðnar í samráði við foreldra.